Wednesday, March 19, 2008

KRAFTAVERK SALERNISPAPPÍRS

KRAFTAVERK SALERNISPAPPÍRS

Hrein og fersk eftir sturtu, stóð ég framanvið spegilinn, ég virti fyrir mér brjóstin á mér og að vanda kvartaði ég yfir því hvað þau eru smá! Í stað venjulega svarsins um að brjóstin á mér væru ekkert smá, breytti maðurinn minn út af venjunni og kom með tillögu.

"Viljir þú að brjóstin stækki, skaltu daglega nudda salernispappír á milli þeirra í nokkrar sekúndur."

Þar sem að ég vildi reyna hvað sem væri, sótti ég mér blað af salernispappír og stóð síðan framan við spegilinn, nuddandi því á milli brjóstanna minna.

"Hvað þarf ég að gera þetta oft" Spurði ég.

"Þau munu vaxa þeim mun meira sem þú gerir þetta oftar," svaraði kallinn minn.

Ég hætti.

"Trúirðu því virkilega að mér nægi að nudda klósettpappír á milli brjóstanna daglega til þess að fá þau til að stækka?"

Án þess að líta upp svaraði hann,
"Virkaði á rassinn á þér, ekki satt?"


Hann lifir enn og með mikilli sjúkrameðferð getur verið að hann gangi á ný, jafnvel þótt hann muni áfram fá sína næringu um strá.

Heimski, heimski karl.

No comments: