Ekki borgar sig nú að standa í því að eiga krakka á miðjum aldri !!!!
Jónas og Magga tóku upp á því þegar þau voru komin vel yfir sextugt að
fara til læknis, fá frjósemislyf og áður en langt um leið, þá varð
Magga ólétt og átti lítið barn.
Þegar Magga og Jónas voru komin heim með litla barnið, þá komu vinir
þeirra og ættingjar til að sjá þetta litla undur. Magga gaf þeim
kaffi og sagði þeim að barnið væri sofandi og þau mættu sjá það þegar
það vaknaði.
Góð stund leið og einhver spurði hvort ekki væri kominn tími til að
sýna barnið. "Nei, ekki ennþá," svaraði Jónas.
Enn leið langur tími og þá spurði einhver hvort hann mætti ekki sjá
barnið, en Magga sagði að það væri ekki hægt. Gesturinn spurði af
hverju. "Barnið er sofandi," svaraði Magga“.
"Getum við ekki fengið að sjá það þó það sofi?" spurðu gestirnir.
"Nei, við verðum að bíða þangað til það fer að gráta," sagði Jónas
gamli.
"Af hverju?" spurðu gestirnir forviða.“
"Af því við munum ekki hvar við létum það," Sögðu Magga og Jónas.“
Friday, March 28, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment