Tuesday, March 1, 2011

Með þeim bestu

Hjónin ákváðu að fara í sólarlandaferð.
Svo illa stóð á að konan komst ekki fyrr en nokkrum dögum seinna svo eiginmaðurinn fór á undan.
Þegar hann er kominn á hótelið tekur hann upp fartölvuna og skrifar tölvupóst til konu sinnar.
Ekki vildi betur til en svo að hann misritaði einn staf í póstfanginu og lenti pósturinn því
óvart hjá nýorðinni ekkju er fyrr um daginn hafði jarðað manninn sinn.
Veslings konan var rétt að jafna sig eftir athöfnina, opnaði tölvupóstinn sinn til að líta
eftir samúðarkveðjum er við henni blasti bréfið.

Þegar sonur ekkjunnar kom heim stuttu seinna, lá hún í yfirliði fyrir framan tölvuna og
stóð eftirfarandi ritað yfir skjáinn:

Til: Konunnar sem varð eftir.
Frá: Manninum sem fór á undan.
Efni: Er kominn á áfangastað

Elskan, er komin á staðinn heill á húfi. Er einnig búinn að kynna mér allar aðstæður
og gera allt klárt fyrir komu þína á morgun.
Óska þér góðrar ferðar og bíð þín með óþreyju.

Ástarkveðjur, þinn ástkæri eiginmaður.

P.S. Fjandi er heitt hérna niðurfrá

No comments: