Friday, March 11, 2011

Ljóska

Æ, þær eru svo grænar sumar!!!

Brúnka, rauðka og ljóska vinna saman á skrifstofu. Þær taka eftir því að á
hverjum degi fer fröken Sigríður yfirmaður þeirra aðeins of snemma heim úr
vinnunni. Einn daginn spjalla þær saman og sjá sér leik á borði að stelast
fyrr úr vinnunni með því að fara stuttu á eftir fröken Sigríði. Næsta dag
fer yfirmaðurinn og þær læðast út stuttu síðar. Brúnkan fer heim til sín og
beint í rúmið, ákveðin í því að vakna snemma næsta morgunn og nýta tímann
vel. Rauðkan notar aukatímann með því að fara í líkamsrækt áður en hún fer
út að borða með vini sínum. Ljóskan fer heim, gengur inn í svefnherbergið og
sér eiginmann sinn í rúminu með fröken Sigríði, yfirmanni hennar. Hún lokar
hurðinni hægt og læðist út. Næsta dag ræða brúnkan og rauðkan um það að nota
sömu aðferð og daginn áður. Þær spyrja ljóskuna hvort hana langi ekki líka
til að fara snemma heim. “Nei” segir ljóskan. “Það komst næstum því upp um
mig í gær!”

No comments: