Hvernig á draumamaðurinn að vera? Endurskoðaður listi með árunum
Upprunalegur listi - 20 ára
Mjög myndarlegur.
Spennandi og skemmtilegur.
Flott klæddur, samkvæmt nýjust tísku.
Þekktur eða á þekkta foreldra.
Á flottan bíl.
Rómantískur.
Fer létt með að segja góða brandara.
Bráðgáfaður.
Er í arðbæru námi eða stefnir á það.
Býður stundum út að borða.
Endurskoðaður listi - 30 ára
Myndarlegur.
Heillandi.
Vel stæður.
Umhyggjusamur hlustandi.
Fyndinn.
Í góðu líkamlegu formi.
Smekklega klæddur.
Kann gott að meta.
Hugulsamur og kemur á óvart.
Hugmyndaríkur og rómantískur elskhugi.
Endurskoðaður listi - 40 ára
Myndarlegur, helst með hár á höfðinu.
Opnar bíldyr.
Á nóg af peningum til að bjóða upp á góðan kvöldverð.
Hlustar meira en hann talar.
Hlær að bröndurunum þínum.
Getur auðveldlega haldið á innkaupapokum.
Á að minnsta kosti eitt fallegt bindi.
Kann að meta góðan heimatilbúinn mat.
Man afmælisdaga og brúðkaupsafmæli.
Er rómantískur minnst einu sinni í viku.
Endurskoðaður listi - 50 ára
Ekki of ljótur en má vera sköllóttur.
Ekur ekki af stað fyrr en þú ert komin inní bílinn.
Er í föstu starfi.
Splæsir stundum í pylsu.
Kinkar kolli þegar þú talar.
Getur yfirleitt sagt brandara án þess að gleyma aðalatriði hans.
Er í nógu góðu líkamlegu ásigkomulagi til að geta fært til húsgögn.
Gengur í skyrtum sem hylja ístruna.
Veit að hann á ekki að kaupa kampavínsflöskur með skrúfuðum tappa.
Man eftir að setja klósettsetuna niður.
Rakar sig yfirleitt.
Endurskoðaður listi - 60 ára
Snyrtir nasahárin og hárin í eyrunum á sér.
Ropar hvorki né klórar sér á almannafæri.
Fær ekki oft lánaða peninga hjá þér.
Sofnar ekki á meðan þú talar.
Segir ekki sama brandarann oft.
Er í nógu góðu líkamlegu ásigkomulagi til að komast upp úr sófanum um helgar.
Er yfirleitt í íþróttasokkum og hreinum nærbuxum.
Kann að meta góðan örbylgjumat yfir sjónvarpinu.
Man alltaf nafnið þitt.
Rakar sig um helgar.
Endurskoðaður listi - 70 ára
Hræðir ekki lítil börn.
Man hvar baðherbergið er.
Þarfnast ekki mikilla peninga til framfærslu.
Hrýtur bara þegar hann sefur.
Man hvers vegna hann er að hlæja.
Er í nógu góðu líkamlegu ásigkomulagi til að geta staðið upp hjálparlaust.
Er venjulega í fötum.
Vill helst mat sem ekki þarf að tyggja.
Man hvar hann skildi tennurnar eftir.
Man að það er helgi.
Endurskoðaður listi - 80 ára
Andar
Tuesday, March 1, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment