Tuesday, September 23, 2008

AÐ STAMA MI MI MI MI MI MIKIÐ!!!

Það er slæmt að stama mi mi mi mi mikiðMaður nokkur stamaði alveg hroðaleg mikið og var búinn að ganga á milli lækna í mörg ár án þess að fá bót meina sinna. Loksins fann hann lækni sem sagðist alveg vita hvað væri að og að það væri hægt að lækna þetta.
“Hv hv hv hv hvað e e e e er h h h hægt a a a a a að ge ge ge gera?” spurði hann.
Læknirinn svaraði “Jú sjáðu til. Limurinn á þér er svo stór að þyngdin á honum orsakar það að mikið tog kemur á hálsinn á þér og veldur staminu. Það eina sem hægt er að gera í þessari stöðu er hreinlega að skipta um lim á þér”
Maðurinn var orðinn þreyttur á því að í mörg ár gat hann varla talað við fólk né það skilið hann þannig að eftir skamman umhugsunartíma ákvað hann að láta slag standa og fara í þessa aðgerð.
Nokkrum dögum síðar hringir læknirinn í hann og tilkynnir að það sé búið að finna lim sem henti og að hann skuli því mæta næsta dag í aðgerðina.
Aðgerðin heppnaðist fullkomnlega og í fyrsta sinn á ævinni gat maðurinn talað á þess að stama.
Til að byrja með var hann alveg í skýjunum yfir þessu en þegar frá leið fór hann að sakna þess að hafa ekki sinn stóra lim og fannst kærasta hans einnig sem að “mikið” vantaði í sambandið eftir aðgerðina.
Hann fór því að lokum aftur til læknisins og sagði honum að sambandsins vegna yrði læknirinn hreinlega að hafa samband við þann sem lét honum í té liminn sinn og skipta aftur.
Læknirinn hristi höfuðið og sagði: “Þa þa þa þa þa það e e e e er ba ba bara e e e ekki hæ hæ hægt”

No comments: