Tuesday, September 30, 2008

Golf

Tvær vinkonur, Sossa og Systa, voru saman í golfi þegar önnur varð fyrir því óhappi að hitta kúluna illa í upphafshöggi og horfði með skelfingu á eftir kúlunni sem stefndi á hóp karlmanna. Kúlan lenti inni í miðjum hópnum og einn maðurinn hné til jarðar haldandi báðum höndum á milli fótanna, greinilega sárþjáður. Vinkonurnar hlupu til mannanna og þegar þær komu að hópnum hélt maðurinn enn höndunum á milli fótanna. Sú sem hafði slegið kúlunni baðst afsökunar og bauð fram aðstoð. Maðurinn vildi ekki að svo stöddu þiggja aðstoð og sagðist jafna sig eftir smá stund. Konan þráaðist við, sagðist vera sjúkraþjálfari og vildi fá að þreifa aðeins ámanninum. Maðurinn lét tilleiðast og fékk hún hann til að leggjast á bakið, tók hendur hans frá, renndi buxnaklaufinni niður og byrjaði að nudda hann rólega. Eftir smástund spurði hún manninn hvernig honum þætti þetta. Maðurinn svarar “þetta er mjög gott, en ég er ennþá að drepast í þumalputtanum

No comments: