Friday, February 12, 2010

Við ítölsku landamærin

Við ítölsku landamærin

Fimm Þjóðverjar í Audi Quattro komu að ítölsku landamærunum.
Landamæravörðurinn stöðvaði þá og sagði: "Það er ólöglegt að hafa fimm manns í Quattro."
"Hvað áttu við?" spurði þýski ökumaðurinn.
"Quattro þýðir fjórir," svaraði Ítalinn.
"Quattro er nafnið á bílnum," sagði Þjóðverjinn. "Sjáðu skráningarskírteinið, þar er sagt að bíllinn sé gerður fyrir fimm manns."
"Þú platar mig ekki svona auðveldlega," sagði ítalski landamæravörðurinn. "Quattro þýðir fjórir. Það eru fimm í bílnum og þess vegna ert þú að brjóta lög."
"Þú ert nú meiri hálfvitinn," sagði Þjóðverjinn, "kallaðu í yfirmann þinn svo að ég geti talað við einhvern með viti."
"Því miður," sagði Ítalinn, "hann er að tala við tvo menn sem eru í Fiat Uno".

No comments: