Saturday, February 27, 2010

Ástin og börnin

"Þegar maður verður skotin í ástfanginn, þá er það
rosalega sárt og maður getur meitt sig alveg fullt."
-Magnús 7. ára.


"Ég veit ekki alveg hvers vegna það eru svona margir
ástfangnir en ég held það sé vegna þess að konur eru
með ilmvatn og karlar rakspíra og það er þá líklega vegna
þess að þau ilma svo vel. Þess vegna seljast ilmvötn svo
mikið. Mamma kaupir alltaf fullt þegar hún fer til útlanda
og oftast fyrir pabba."
-Siggi 8. ára.


"Ég hef heyrt að ástin og að verða ástfanginn sé það
mikilvægasta í heiminum, en það er líka mikilvægt að
Manchester United gangi vel!"
-Friðrik 8. ára.

"Strax á eftir þegar ég er búinn í leikskólanum ætla ég að
finna mér konu."
-Tómas 5 ára.


"Mér finnst voða gaman að horfa á ástina, bara ekki á meðan
Birta og Bárður eru. Ég vil frekar horfa á þau."
-Helga 7. ára.


"Fyrst þegar kærustupar ferð út saman þá skrökva þau alveg
fullt að hvort örðu, en samt fara þau út aftur...og verða kannski
hjón?"
-Finnur 10. ára.

"Ég er með svolítið margar freknur, svo að konan mín verður
að hafa freknur líka."
-Andri 6. ára.


"Mamma sagði að ég ætti að velja mér mann sem væri
glaður og myndarlegur."
-Katrín 8. ára.


"Æ, hættu að spyrja mig að þessu með ástina, ég fæ hausverk...
ég bara krakki og ég þarf enga ástina."
-Ragnar 7 ára.

"Ég ætla sko ekkert að flýta mér að verða ástfanginn.
Það er alveg nógu erfitt að vera í skólanum."
-Regína 10.ára.

"Mamma segir að karlmenn séu heilalausir. Hún er búin að
reyna að finna marga sem eru með heila en það gengur illa."
-Agnes 10. ára.

"Maður og kona lofa að fara í gegnum allt saman, líka
Hvalfjarðagöngin."
-Ómar 7. ára.

"Ég ætla sko ekki að eignast börn! Eða jú kannski? En ekki
að skipta um bleyjur! Ég myndi bara hringja í mömmu og bjóða
henni í kaffi til að fá hana til að skipta um bleyjur."
-Kristín 10. ára

"Ástin er mjög asnaleg...en ég held ég verði samt að prófa hana?"
-Sigrún 9. ára.

"Ástin finnur mann sko alltaf... jafnvel þótt þú reynir að fela þig. Ég hef reynt
að fela mig oft, oft, en alltaf finna stelpurnar mig og verða skotnar í mér."
-Davíð 8. ára.

No comments: