Starfsmannastjórinn þurfti að ráða í eina stöðu og eftir að hafa farið yfir umsóknirnar stóðu eftir fjórir umsækjendur sem allir voru jafn hæfir. Hann ákvað að boða alla á sinn fund og spyrja einnar spurningar. Svörin myndu ákvarða hver fengi vinnuna. Dagurinn rennur upp og allir fjórir umsækjendurnir eru saman komnir í fundarherbergi fyrirtækisins og starfsmannastjórinn spyr: "Hvað er það hraðasta sem þið vitið um?" Sá fyrsti svarar: "Hugsun. Mannshugurinn virkar ótrúlega hratt og maður getur fengið ótrúlegustu hugmyndir á nokkrum sekúndum." "Mjög gott!" segir starfsmannastjórinn. "Og þú?" spyr hann umsækjanda númer tvö. "Hmm... látum okkur sjá. Blikk augans. Það kemur og fer án þess að þú þurfir að hugsa um það." "Frábært!" segir starfsmannastjórinn. "Augnablik er einmitt mjög oft notað sem mælikvarði á eitthvað semgerist mjög hratt." Hann snýr sér svo að þeim þriðja sem er tilbúinn með svar: "Það hlýtur að vera hraði ljóssins," segir hann, "til dæmis, þegar ég er að fara út í bílskúr, þá nota ég kveikjarann sem er við útidyrnar og áður en ég get blikkað augunum, þá er ljósið komið á úti í bílskúr. Hraði ljóssins er það hraðasta sem ég þekki." Starfsmannastjórinn var yfir sig hrifinn og hélt hann hefði fundið sinn mann. "Það er erfitt að slá út hraða ljóssins." Þessu næst snýr hann sér að fjórða og síðasta umsækjandanum. "Það er augljóst fyrir mér að það hraðasta í heimi er niðurgangur." "Ha?" spyr starfsmannastjórinn, steinhissa á svarinu. "Bíddu, leyfðu mér að útskýra. Sjáðu til, um daginn leið mér ekki vel og dreif mig á klósettið. En áður en ég gat hugsað, blikkað eða kveikt ljósin, þá var ég búinn að drulla í buxurnar."
Hann var ráðinn
Thursday, May 8, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment