Það var litill strákur á leikskóla sem var alltaf að tala um að hann væri að fara að fá lítinn bróður. Hann talaði um þetta á hverjum degi og var voða spenntur fyrir þessu.
Kvöld eitt kallaði mamma hans á hann og lét hann leggja hendina á magann á henni og finna spark og hreyfingu, hann var hljóður á eftir.
Nokkrum dögum seinna tóku fóstrurnar eftir því að hann var hættur að tala um bróður sinn , svo þær spurðu hann um bróður hans, ????
Ég fæ engan bróður , mamma át hann.
Thursday, March 4, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment