Það var litill strákur á leikskóla sem var alltaf að tala um að hann væri að fara að fá lítinn bróður. Hann talaði um þetta á hverjum degi og var voða spenntur fyrir þessu.
Kvöld eitt kallaði mamma hans á hann og lét hann leggja hendina á magann á henni og finna spark og hreyfingu, hann var hljóður á eftir.
Nokkrum dögum seinna tóku fóstrurnar eftir því að hann var hættur að tala um bróður sinn , svo þær spurðu hann um bróður hans, ????
Ég fæ engan bróður , mamma át hann.
Thursday, March 4, 2010
Ásrfangið par
Maður sagði þessa sögu af ástföngnu pari,sem var komið að því að giftast.
Konan setti eitt skilyrði fyrir hnappheldunni,að hann léti af öllum drykkjuskap og setti reglusemi ofar öllu.
Krafðist hún að inn í giftingarhringinn áletrað nafn hennar og heitstrengingar orðin ást – tryggð –virðing - reglusemi.
Hann játti þessu og fór með þessar upplýsingar til gullsmiðsins.
Gullsmiðurinn fórnaði höndum sagðist ekki koma þessu öllu fyrir innan í hringnum.
Stakk hann upp á að skammstafa þetta bara,maðurinn brosti og samþykkti þetta.
Nafn konunnar var síðan sett í hringinn og “ ÁTVR”.

Börnin
Lítil stelpa er að spyrja mömmu sína hvernig hún varð til.
Mamma hennar svarar með þekktum frasa: "Nú, storkurinn kom með þig elskan." "Og kom hann með þig líka mamma?" heldur hún áfram. "Já elskan, hann gerði það.""Og pabba, ömmu og afa og langömmu og langafa líka?""Já elskan, storkurinn kom með þau öll."
Litla stelpan hristir hausinn vonsvikin. "Það er ekkert skrýtið að allir séu svona geðvondir. Það hefur ekki verið stundað kynlíf í fjölskyldunni í yfir 200 ár...“

Subscribe to:
Posts (Atom)