Monday, November 30, 2009

Dæmisaga sem sýnir að það er betra að vera vel upplýstur í starfi

Prestur nokkur býður nunnu einni far. Hún sest inn í bílinn, krossleggur fæturna svo það sést smávegis í leggina á henni. Presturinn er við að aka útaf. Eftir að hafa náð stjórn á bílnum að nýju, strýkur hann kæruleysislega með annarri hendi upp eftir fætinum á henni. Nunnan segir :"Faðir, mundu sálm 129!Presturinn fjarlægir höndina, en næst þegar hann skiptir um gír lætur hann hendina aftur renna á hnéð á henni. – Aftur segir nunnan ákveðin: "Faðir, mundu sálm 129!"... Presturinn afsakar sig " Fyrirgefðu systir, en holdið er veikt"
Þegar þau koma að klaustrinu fer nunnan sína leið. Þegar presturinn kemur í kirkjuna flýtir hann sér að fletta upp á sálmi 129. Þar stendur skrifað: "Gakk fram og leitaðu hærra upp - og þú munt upplifa himnaríki"
Lærdómurinn : Ef þú heldur þér ekki vel upplýstum í starfi átt þú á hættu að fara á mis við stóra möguleika...

No comments: