.jpg)
Sunday, December 6, 2009
Nokkrar fleygar setningar úr sjúkraskrám
* Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn.
* Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið.
* Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með kjötbollum.
* Eftir það var hún í samkvæmi.
* Fékk vægan verk undir morgunsárið.
* Hún hefur þroskast eðlilega framan til.
* Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitthvora áttina í byrjun desember.
* Húðin var rök og þurr.
* Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr.
* Móðir getur látið barnið sitja með því að setja fæturna í hring.
* Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu leyti hjálpað sér sjálf.
* Saga er fengin hjá uppgefnum ættingjum.
* Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur.
* Sjúklingi batnar ef lagst er ofan á hann.
* Sjúklingur borðar reglulegt mataræði.
* Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð.
* Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.
* Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niðurúr.
* Sjúklingur fékk vöfflur í morgunmat og var kominn með lystarstol í hádeginu.
* Sjúklingur fékk þá mjög langsótt kvef.
* Sjúklingur fær verki í bringunni ef hún liggur á vinstri hlið í meira en eitt ár.
* Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sumarbústað - en er ráðlagt eftirlit ef verkir koma fram við önnur tækifæri.
* Sjúklingur hefur átt við gott heilsufar að stríða.
* Sjúklingur hefur fremur óbærilega verki.
* Sjúklingur hefur formlegar hægðir.
* Sjúklingur hefur skilið hvítu blóðkornin eftir á öðrum spítala.
* Sjúklingur hefur verið að þyngjast af asthmanum s.l. sólahring.
* Sjúklingur hefur verið mædd s.l. fimm ár.
* Sjúklingur hefur verið niðurdregin alveg síðan hann byrjaði að hitta mig 1983.
* Sjúklingur hefir verið í vandræðum með gervifótinn, en hann hefur haft fjóra fætur frá því hann lenti í slysinu, en þann síðasta fékk hann í apríl.
* Sjúklingur lærði söngnám.
* Sjúklingur tekur engin lyf en magnyl þess á milli.
* Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera niðurdreginn.
* Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til flugvélin hans varð eldsneytislaus og hrapaði.
* Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar mann sem heitir Kristmundur.
* Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt.
* Tekin var mynd af sjúklingi sem sýnir breytingar í Hafnarfirði.
* Við komu á spítalann var sjúklingur fljótlega skoðaður af undirrituðum og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára karlmann sem er mjög þrekvaxinn og vöðvastæltur.
* Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill.
* Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð.
* Við skoðun eru engar eitlastækkanir að gagni.
* Það sem fyllti mælinn var þvagleki. *
Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa.
* Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur.
* Þessi maður veit ekki um skyldleika í ætt.
..og svo kemur hér eitthvað um þá sem höfðu það ekki af á spítalanum, tekið upp úr minningagreinum í Mbl.
* Drottinn minn, gefðu dánum ró og hinum líkin sem lifa.
* Hann giftist eftirlifandi eiginkonu sinni og átu þau tvö born.
* Gönguferðin þeirra varð styttri en menn vonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt til jarðar.
* Hún hafði það sterka skapgerð að smávegis rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi.
* Hann var sannur íslendingur og dó á 17. júní.
* Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag.
* Hann skrapp úr vinnu til að fara í þrekpróf í Hjartavernd, en kom þaðan liðið lík.
* Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstandendum skaðann.
* Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér vegna barnanna.
* Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim.
* Og má segja að ekki setti hún svo skál með tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og listfengi.
* Orð þessi eru skrifuð til að flytja Sveini (líkinu) kveðju og þakkir frá tengdafólki hans og ekki síður frá tengdamóður hans, þótt nú nálgist 20. árið frá fráfalli hennar.
* Ágústa giftist ekki og eignaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs.
* Á þessum fjölbreytta lífsferli sínum kynntist Guðjón mörgum mönnum af ýmsum þjóðernum, þ. á m. Indíánum og Kínverjum. Hann lærði tungumál þeirra að meira eða minna leyti, einkum þó ensku og norðurlandamálin.

Monday, November 30, 2009
Skemmtileg pæling um nýja kennsluhætti
Skemmtileg pæling um nýja kennsluhætti
Þetta hefur kannski verið sent á Degi íslenskrar tungu? ? J
Eftirfarandi bréf barst stjórnendum MK á dögunum frá nemanda sem vill koma á nýtískulegum kennsluháttum í skólanum:
Mörgum nemendum finnst kennarar þeirra vera ótrúlega leim og voða mikið bara að kenna eitthvað júsless stöff. Allar bækurnar sem eru lesnar í íslensku eru t.d. most boring bækur ever sem enginn les nema einhverjir proffar! Án djóks! Svo tala þeir einhvað fokking fornmál og maður bara VÓ! og skilur ekki rass og svo hrauna þeir bara yfir mann ef maður spyr kannski aftur hvað hafi skeð fyrir einhvern í einhverri sögu!
Kannski ættu kennarar að pæla í því að gleyma gömlu kennsluaðferðunum sem eru nú ekkert til að hlaupa húrra fyrir og þeir eru búnir að nota síðan í örlý seventís og fara að öpdeita sig aðeins.
Þeir gætu t.d. komið sér upp kennslusíðum á feisinu og gætu þá addað nemendum og þá nottla bara þeim sem hafa áhuga. Þá gætu kennararnir líka tjattað við nemendur og búið til allskonar quiz og test sem nemendum þætti gaman af í staðinn fyrir að vera alltaf að bögga nemendur með sjúklega leiðinlegum prófum.
Svo er gegt góð hugmynd að nemendur gætu þá líka alltaf kommentað á t.d heimanámið því það er ógeðslega fúlt að hafa of mikið að gera eða verið með reitings á kennsluna og kannski gætu kennarar sem skora hátt fengið hærri laun eða eikkað.
Kennarar gætu líka verið með til dæmis groups um kjörbókarritgerð og þá gætu þeir bara joinað sem ætluðu að lesa heila bók eða sollis og fá þannig 10% .
Kennaranir gætu líka sett inn events þegar væri að koma próf og sent nemendum bara invitation þá myndu allir pottþétt vita það. Ekki eins og núna þegar stundum er ekki einu sinni sagt manni að það sé próf næsta dag! Kommon!
Svo ef kennarinn sé veikur þá er næs að hann geti bara sett það í statusinn og nemendur sjá það og bara hjúkket! Frí! Sjitt hvað það væri osom!
Svo gætu allir sett inn myndir – bara svona normal myndir – ekkert djúsí sem kennarinn má ekki sjá ;) og þá er hægt að tagga aðra nemendur á myndunum og þá væri miklu meira easy skiluru fyrir kennarann að muna hvað allir heita sko.
Kennarar gætu líka kennt bara online og allir fengu mætingu ef þeir væru loggaðir inn. Það væri svít. Þá gætu nemendur bara tjillað heima kannski og dánlódað bara öllu draslinu í tölvurnar eða ipodana sína!
Allavega er aðal issjúið að kennarar átti sig á því að núna eru þeir í tómu tjóni og það sé möst að þeir geri huge breytingar á kennslunni sko! Sorrý en þeir verða að spá í að þeir eru líka í keppni við allt hitt stöffið sem nemendur geta skemmt sér við í tölvunum. Það er audda miklu skemmtilegra að spila tölvuleik eða að horfa á eitthvað á Youtube heldren að hlustá einhvern kennara tala. En whatever...eikkað er greinilega að og því er skorað á kennara: Reynið að láta nemendunum hlakka til að mæta í tíma til ykkar og þið rúlið!

Frábær leiðarvísir
Hin 90 ára gamla Regina Brett frá Ohio – skrifaði þessi 45 atriði um það sem lífið hafði kennt henni:
1. Lífið er ekki sanngjarnt, en það er samt ljúft
2. Þegar þú ert í vafa, taktu þá bara lítið skref
3. Lífið er of stutt til að eyða tíma í að hata einhvern
4. Vinnan þín mun ekki sjá um þig þegar þú verður veik(ur). Vinir þínir og fjölskylda munu gera það. Vertu því í sambandi við þau.
5. Greiddu kreditkortareikninginn þinn í hverjum mánuði
6. Þú þarft ekki að vinna öll deilumál – samþykktu að vera ósammála
7. Gráttu með einhverjum. Það er betra en að gráta einn
8. Það er allt í lagi að reiðast út í guð.- - - Hann þolir það
9. Safnaðu fyrir elliárunum og byrjaðu með fyrsta launaseðlinum
10. Þegar kemur að súkkulaði, þá er mótstaða árangurslaus
11. Semdu frið um fortíðina, þannig að hún eyðileggi ekki samtíðina
12. Það er í lagi að láta börnin þín sjá þig gráta
13. Berðu ekki þitt líf saman við annarra. Þú hefur ekki hugmynd um hvernig þeirra líf er
14. Ef samband þarf að vera leynilegt, þá áttu ekki að vera í því
15. Allt getur breyst á augabragði. En hafðu ekki áhyggjur
16. Dragðu andann djúpt að þér – það róar hugann
17. Losaðu þig við allt sem ekki er nýtilegt, fallegt eða skemmtilegt
18. Það sem ekki drepur þig gerir þig bara sterkari
19. Það er aldrei of seint að hafa skemmtilega barnæsku. En sú seinni er alveg undir þér komin og engum öðrum
20. Þegar kemur að því að sækjast eftir því sem þú elskar við lífið, taktu þá aldrei Nei sem svar 21. Brenndu kertin, notaðu fínu rúmfötin, farðu í fínu nærfötin. - - - Sparaðu þetta ekki fyrir sérstök tilefni – Í dag er sérstakt tilefni
22. Undirbúðu þig ávallt vel – láttu svo strauminn taka þig
23. Vertu óvenjuleg(ur) í dag - - - Bíddu ekki eftir gamals aldri til að klæða þig í fjólubláan lit !
24. Mundu að mest áríðandi kynfærið er heilinn
25. Enginn ræður yfir hamingju þinni nema þú
26. Rammaðu inn allar svokallaðar þjáningar með orðunum . . . . „Mun þetta skipta einhverju máli eftir 5 ár“ ?
27. Hafðu lífið alltaf að leiðarljósi
28. Fyrirgefðu öðrum allt
29. Það sem aðrir hugsa um þig kemur þér alls ekki við
30. Tíminn læknar svo til allt. . . . Gefðu tímanum tíma
31. Hversu gott eða slæmt sem ástandið er,. . . þá mun það breytast
32. Taktu þig ekki of hátíðlega, . . . enginn annar gerir það
33. Trúðu á kraftaverk
34. Guð elskar þig vegna þess hver hann er, ekki vegna þess sem þú gerðir eða gerðir ekki
35. Endurskoðaðu ekki lífið, . . Vertu til staðar og taktu þátt í því
36. Að verða gamall er betra en hinn kosturinn - - - að deyja ungur
37. Börnin þín fá bara eina barnæsku
38. Allt sem skiptir máli í lokin er að þú hafir elskað
39. Farðu út á hverjum degi , - - kraftaverk bíða alls staðar
40. Ef við myndum öll kasta áhyggjum okkar í stafla og sæjum stafla hinna, . . þá myndum við hrifsa okkar til baka
41. Öfund er tímasóun.- - - Þú hefur nú þegar allt sem þú þarfnast
42. Það besta er ef til vill einnig ókomið
43. Það skiptir ekki máli hvernig þér líður, - - - farðu á fætur, klæddu þig og sýndu þig.
44. Láttu undan
45. Lífið er ekki skreytt með slaufum, - - en samt er það gjöf Áætlað er að 93% móttakenda muni ekki senda þetta áfram, en ef til vill ert þú hins vegar ein(n) af þeim 7% sem gera það

Dæmisaga sem sýnir að það er betra að vera vel upplýstur í starfi
Prestur nokkur býður nunnu einni far. Hún sest inn í bílinn, krossleggur fæturna svo það sést smávegis í leggina á henni. Presturinn er við að aka útaf. Eftir að hafa náð stjórn á bílnum að nýju, strýkur hann kæruleysislega með annarri hendi upp eftir fætinum á henni. Nunnan segir :"Faðir, mundu sálm 129!Presturinn fjarlægir höndina, en næst þegar hann skiptir um gír lætur hann hendina aftur renna á hnéð á henni. – Aftur segir nunnan ákveðin: "Faðir, mundu sálm 129!"... Presturinn afsakar sig " Fyrirgefðu systir, en holdið er veikt"
Þegar þau koma að klaustrinu fer nunnan sína leið. Þegar presturinn kemur í kirkjuna flýtir hann sér að fletta upp á sálmi 129. Þar stendur skrifað: "Gakk fram og leitaðu hærra upp - og þú munt upplifa himnaríki"
Lærdómurinn : Ef þú heldur þér ekki vel upplýstum í starfi átt þú á hættu að fara á mis við stóra möguleika...

Tuesday, November 17, 2009
Lyfjafræði
"Children, please name a medicine and what it is used for," said Mrs. Johnson. The first student said, "Tylenol." "Very good! And what is Tylenol used for?" "It's for headaches." "Excellent. Anyone else?" Another pupil said, "Nytol." "Excellent. And what is Nytol used for?" "It helps you go to sleep." "That's right. Johnny? Do you know a medicine?" Little Johnny thought a moment and then said, "Viagra." "Uh, okay, Johnny. What is Viagra used for?" "I think it's for diarrhea." "Diarrhea? Who told you that?" "No one, but the other night I heard my mom tell my dad, 'Take a Viagra and maybe that little sh¡t will get harder!' "
Friday, October 9, 2009
Monday, October 5, 2009
Af hverju er svona mikið að gera hjá konum ?
Kvenlegt annríki Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum. Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót. Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það) Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar. Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því. Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða. Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð. Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta ; á eftir banananum, tannbursta ... Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar... Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn. Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund). Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí. Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman. Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?! Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar. Var ein hendi laus? Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!! Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir... En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér. Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.
Friday, October 2, 2009
Í orðastað Sigmundar Ernis
Í orðastað Sigmundar Ernis
“Við syrgjum tapaðan Íslands auð
sem allur var tekinn að láni
því fór ég í golf sem bankinn bauð
bisnisskörlum og alþingissauð
át og drakk eins og bjáni.
Viðstaddir gleymdu stað og stund
stappi, hruni og mæðu.
Svo þurfti ég víst að fara á fund
ferlega mildur og kátur í lund
með skrifaða skáldlega ræðu.
Málið er flókið og umræðan öll
út í móa er farin.
Ég fíl’ ekki þessi frammíköll
og framsóknartittanna hlátrasköll
og ætla því aftur á barinn.”
“Við syrgjum tapaðan Íslands auð
sem allur var tekinn að láni
því fór ég í golf sem bankinn bauð
bisnisskörlum og alþingissauð
át og drakk eins og bjáni.
Viðstaddir gleymdu stað og stund
stappi, hruni og mæðu.
Svo þurfti ég víst að fara á fund
ferlega mildur og kátur í lund
með skrifaða skáldlega ræðu.
Málið er flókið og umræðan öll
út í móa er farin.
Ég fíl’ ekki þessi frammíköll
og framsóknartittanna hlátrasköll
og ætla því aftur á barinn.”
7%
Helgur maður var í viðræðum við Guð og sagði: Guð, mig langar að vita hver munurinn er á himni og helvíti. Við svo búið fór Guð með manninn að tvennum dyrum. Hann opnaði aðra þeirra og hinn helgi maður leit inn. Í miðju herbergisins var stórt hringlaga borð. Á miðju borðsins var stór pottur með pottrétti sem ilmaði svo vel að hinn helgi maður fékk vatn í munninn. Fólkið sem sat við borðið var horað og veiklulegt. Það leit út fyrir að vera að svelta í hel. Fólkið hélt á skeiðum með löngu handfangi og hendur þeirra voru bundnar við stólana en þó gátu þau veitt matinn upp úr pottinum með skeiðinni. En þar sem handföngin á skeiðunum voru lengri en hendur þeirra þá gátu þau ekki komið matnum úr skeiðinni upp í sig. Hinn helgi maður varð undrandi á þeirri eymd og þjáningu sem við honum blasti. Guð sagði, 'Þú hefur nú séð inn í helvíti.' Síðan fóru þeir að næstu hurð og opnuðu hana. Við blasti sama sjón og í fyrra herberginu. Stórt hringlaga borð með stórum potti fullum af pottrétti sem einnig varð til þess að hinn heilagi maður fékk vatn í munninn. Fólkið hafði sama búnað, þ.e. skeiðar með löngu handfangi.. Munurinn var hins vegar sá að þetta fólk var vel haldið, kátt,hresst og talaði saman. Þetta sagðist hinn helgi maður ekki skilja. Þetta er einfalt, sagði Guð. En þetta krefst eins hæfileika. Eins og þú sérð þá hefur þetta fólk lært að mata hvert annað á meðan að hinir gráðugu hugsa eingöngu um sjálfan sig. Það er talið líklegt að 93% muni ekki senda þennan póst áfram. Ef að þú ert á meðal hinna 7% sem munu áframsenda þenna póst þá áframsendu hann undir nafninu "7%" Ég er í 7% hlutanum. Mundu að ég mun alltaf deila skeið minni með þér.
Steingrímur J
Á góðum degi í framtíðinni ...Steingrímur Sigfússon er kominn til himna þar sem hann hitti Lykla-Pétur.Lykla-Pétur varð svolítið vandaræðalegur: „Eh, velkominn,“ sagði hann loks. „Þakka þér fyrir,“ sagði Steingrímur, „ég vissi að ég mundi enda hér“.„Nja,“ sagði Pétur , „þú hefur lifað sæmilega frómu lífi, eða þannig, svo við vildum gjarnan hafa þig hér en því eru ekki allir sammála. Þú ert umdeildur maður og það hafa fleiri áhuga á þér en við hér í himnaríki. Við urðum að halda fund með djöflinum þar sem þetta var rætt og það endaði með því að við gerðum samning við hann.“„Samning!“ Hrópaði Steingrímur og var sýnilega brugðið.„Það er nú ekki alslæmt,“ sagði Pétur, „en djöfullinn sagðist nú þegar hafa flesta vini þína svo við sömdum um að þú eyddir einum sólarhring í helvíti og öðrum hér hjá okkur í himnaríki og svo velur þú sjálfur hvar þú dvelur um aldur og eilífð.Steingrímur maldaði svolítið í móinn en samningur er jú samningur svo Pétur vísaði honum á lyftuna, kvaddi hann og sagðist sjá hann eftir sólarhring. Steingrímur ýtti á hnapp merktan „helvíti“ í lyftunni og seig svo langt, langt niður á við þar til lyftan stoppaði við kolsvarta hurð. Þegar dyrnar opnuðust stóð djöfullinn sjálfur fyrir innan. „Gamli vinur, vertu hjartanlega velkominn, gakktu í bæinn,“ sagði kölski.Steingrímur fór inn og við honum blasti risastór golfvöllur. Margir af hans gömlu flokksbræðrum léku golf á vellinum eða stóðu í smáhópum og töluðu saman. Golfvöllurinn var fullkominn. Það var heitt í lofti og út um allt voru léttklæddar, snoppufríðar djöflastelpur sem færðu mönnum bjór og aðra kalda drykki. Steingrímur lék golf allan daginn og um kvöldið bauð Svavar Gestsson, honum í „gúrme“grill ásamt Indriða, Álfheiði og fleiri góðum vinum með öllu góðgæti sem hugsast gat. Fáum sögum fer af því hvernig Steingrímur eyddi nóttinni en sólarhringurinn í helvíti var fljótur að líða og morguninn eftir var honum vísað á lyftuna á ný.Þegar Steingrímur kom aftur til himnaríkis var hann efins um ágæti þess staðar en það var samt sem áður tekið vel á móti honum. Hann var klæddur í englaföt og fengin harpa til að leika á. Hann eyddi deginum með því að ganga um milli skýjanna, hlustaði á fagran fuglasöng og borðaði ferska ávexti. Hann fékk reyndar í magann af ávöxtunum og það pirraði hann að sjá Davíð og Þorgerði sitja saman á skýi og leika á hörpur af mikilli innlifun.Um kvöldið kom Pétur. „Nú ertu búinn að dvelja heilan sólarhring í helvíti og heilan dag hér í himnaríki. Ertu kannski búinn að ákveða þig?“ Spurði Lykla-Pétur.„Hmm,“ sagði Steingrímur, ég átti nú kannski ekki von á því en ég held að ég velji helvíti, þrátt fyrir allt. Það er heppilegasti staðurinn fyrir mig.“ Andlitið datt af Pétri og hann reyndi hvað hann gat að fá Steingrím ofan af ákvörðun sinni. En Steingrímur var harðákveðinn.Á ný fór Steingrímur með lyftunni niður í helvíti og djöfullinn tók aftur á móti honum. Hann kippti Steingrími inn en þar var þá allt öðru vísi umhorfs en daginn áður. Brennisteinsfnykinn lagði um allt og skerandi sársaukavein flokksbræðra hans og vina fylltu loftið. „En hvar er golfvöllurinn?“ Spurði Steingrímur. „Og djöflastelpurnar, bjórinn og grillið?„Ah,“ sagði djöfullinn, „þú skilur þetta manna best, í gær var kosningabaráttan í fullum gangi. En nú ertu búinn að kjósa!“
Tuesday, May 12, 2009
Ekki svo fjarri lagi er það ?
Hilda er bareigandi í Berlín. Til þess að auka veltuna þá ákveður hún að leyfa dyggum viðskiptavinum—sem flestir eru atvinnulausir alkar—að drekka út á krít. Hún skráir allt sem drukkið er í þykkan kladda. Þegar þetta þægilega fyrirkomulag spyrst út þá flykkjast nýir viðskiptavinir á barinn. Frelsi fólks til þess að njóta augnabliksins og borga seinna gefur Hildu valið tækifæri til þess að hækka verðið á vinsælustu veigunum, bjór og víni Salan eykst gífurlega. Ungur og efnilegur lánafulltrúi í hverfisbankanum gerir sér grein fyrir að þessar skuldir viðskiptavinanna eru framtíðarverðmæti. Hann hækkar því yfirdráttarheimild Hildu í bankanum. Lánafulltrúinn telur þetta vandræðalaust vegna þess að skuldir alkanna eru haldgóð veð. Í höfuðstöðvum bankans breyta sérfræðingar í æðri peningalist þessum viðskiptaskuldum í Drykkjuskuldabréf, Alkabréfavafninga og Gubbuafleiður. Þessi verðbréf—sem virt áhættumatsfyrirtæki hafa (gegn þóknun) stimplað AAA gæðastimpli—ganga síðan kaupum og sölum út um allan heim. Raunverulega skilur enginn hvað nöfn bréfanna þýða eða hvernig þau eru tryggð. Samt sem áður halda þau áfram að hækka. Þau eru metsöluvara. Einn góðan veðurdag, þrátt fyrir að bréfin séu enn á uppleið, þá ákveður áhættusérfræðingur bankans að nú sé tímabært að drykkjuhrútarnir á bar Hildu borgi eitthvað upp í skuldirnar. Þeir geta það hins vegar ekki. Hilda getur því ekki staðið í skilum við sína skuldunauta og lýsir yfir gjaldþroti. Drykkju- og Alkabréf falla um 95%. Gubbubréfin gera betur og ná stöðugleika eftir 80% fall. Nýr veruleiki blasir við hjá fyrirtækjum sem seldu barnum á lánakjörum og hafa jafnvel líka fjárfest í fyrrnefndum bréfum. Heildsalan sem seldi Hildu vín er gjaldþrota og fyrirtækið sem seldi bjórinn er yfirtekið af keppinauti. Eftir dramatísk fundahöld og andvökustundir sem standa samfleytt í marga sólarhringa þá ákveða stjórnvöld að bjarga bankanum. Nýr skattur er lagður á. Bindindismenn eru látnir borga brúsann.
Friday, February 13, 2009
Tímaleysi
... síðustu vikur ætla ég að deila með ykkur í von um að þið lærið eitthvað af því...
Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og
einn banana til að fá kalíum Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te ánsykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem ernáttúrulega allra meina bót. Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, semtekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það) Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum semenginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dagmun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar. Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, ogdrekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn RedBull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þábúinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því. Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkarheilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar,fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundraðsinnum. Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir ádag að borða. Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð. Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum, tannbursta ... Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleymatannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín,því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar,tennurnar... Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm semfara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjárstundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þanndaginn. Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekkigleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu aðfá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund). Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf aðvökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð ífrí. Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð ogeina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman. Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að verafrumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki umtantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftirhverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara ísturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða kött? Börn?! Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin áþessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Tildæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þanniglítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu meðtannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi meðmakanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þúburstar tennurnar. Var ein hendi laus? Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!! Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því aðhalda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann meðjógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá ávinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitthvítlaukshylki sem er svo gott fyrir... En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann,bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef égekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast áklósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
Knús og klem

Thursday, January 29, 2009
Ja hver andsk…. hverju orði sannarra!!
Íslenskt og japanskt fyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttæringi. Liðsmenn frá báðum fyrirtækjum æfðu stíft og voru í toppformi þegar að sjálfri keppninni kom. Japanirnir urðu 1 km á undan íslenska liðinu.Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppnina að ári. Var settur á fót vinnuhópur til að skoða vandamálið.Eftir heilmiklar pælingar komst vinnuhópurinn að því að Japanirnir létu 7 menn róa en einn stýra. Í íslenska liðinu var það einn sem réri og sjö sem stjórnuðu. Vegna þessarar miklu krísu afréð yfirstjórn íslenska fyrirtækisins að fá ráðgjafarfyrirtæki til að kanna strúktur íslenska liðsins og gera nýtt skipurit ef á þyrfti að halda. Eftir margra mánaða vinnu komust stjórnunarfræðingarnir að því að í íslenska bátnum væru það of margir sem stjórnuðu en of fáir sem réru. Með hliðsjón af skýrslu sérfræðinganna var strax ráðist í skipulagsbreytingar. Í stað þess að hafa sjö stýrimenn, einn áramann voru nú hafði fjórir stýrimenn, tveir yfirstýrimenn, einn leiðtogi stýrimanna og einn áramaður. Að auki var áramaðurinn “motiveraður” samkvæmt meginreglunni: “Að breikka starfssvið starfsmanna og veita þeim meiri ábyrgð”.Næstu keppni unnu Japanirnir með 2 km forskoti.Íslenska fyrirtækið rak að sjálfsögðu áramanninn með tilliti til lélegrar frammistöðu, en greiddi bónus til stjórnarinnar vegna þeirrar miklu vinnu sem hún hafði innt af hendi.
Subscribe to:
Posts (Atom)