Monday, December 22, 2008
Afi og amma
Afi og amma sátu saman í stofusófanum. Þau sögðu yfirleitt ekki neitt við hvort annað nema þegar þau þurftu að nöldra yfir einhverju. Þess í stað sátu þau þegjandi og létu tímann líða. Skyndilega slær amma afa utan undir með flötum lófa. Afa er brugðið og horfir í forundran á ömmu. Þegar hann hefur jafnað sig spyr hann: "Hvað átti þetta að þýða?" Amma svarar ofur rólega: "Þetta er fyrir að hafa aldrei veitt mér almennilegt kynlíf í öll þau 60 ár sem við höfum verið saman frá fermingaraldri. Bara alltaf þetta sama lélegasta kynlíf í heimi." Afi þegir niðurlútur og skömmustulegur. Að nokkrum tíma liðnum slær hann ömmu utan undir með flötum lófa. Amma hrekkur við og spyr: "Hvað er að þér maður? Ertu orðinn vitlaus? Hvað á þetta að þýða?" Afi svarar: "Þetta er fyrir að þú skulir þekkja muninn."
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment