Monday, December 22, 2008

Afi og amma

Afi og amma sátu saman í stofusófanum. Þau sögðu yfirleitt ekki neitt við hvort annað nema þegar þau þurftu að nöldra yfir einhverju. Þess í stað sátu þau þegjandi og létu tímann líða. Skyndilega slær amma afa utan undir með flötum lófa. Afa er brugðið og horfir í forundran á ömmu. Þegar hann hefur jafnað sig spyr hann: "Hvað átti þetta að þýða?" Amma svarar ofur rólega: "Þetta er fyrir að hafa aldrei veitt mér almennilegt kynlíf í öll þau 60 ár sem við höfum verið saman frá fermingaraldri. Bara alltaf þetta sama lélegasta kynlíf í heimi." Afi þegir niðurlútur og skömmustulegur. Að nokkrum tíma liðnum slær hann ömmu utan undir með flötum lófa. Amma hrekkur við og spyr: "Hvað er að þér maður? Ertu orðinn vitlaus? Hvað á þetta að þýða?" Afi svarar: "Þetta er fyrir að þú skulir þekkja muninn."

Sunday, December 21, 2008

Friday, December 12, 2008

Holy shit


Bankavísur

Glitnisgaur kom fyrstur,
gráðugur í öll bréf.
Hann laumaðist í vasana
og lék með fólksins fé.

Hann vildi sjúga þjóðina,
-þá varð henni ekki um sel,
því greyið var sko afæta,
-það gekk nú ekki vel.

2.
Björgúlfsaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
-Hann skreið úr skipi hafsins
og skaust í bankann inn.

Hann faldi sig í Rússlandi
og froðunni stal,
meðan bjórmeistarinn átti
við Yeltsín gamla tal.

3.
Bjármann hét sá þriðji,
böðullinn sá.
Hann krækti sér í milljarða
þegar kostur var á.

Hann hljóp með þá til Noregs
en hirti ekki um sjóðina,
sem féllu hver af öðrum
við sjáum núna slóðina.

4.
Sá fjórði, Bændasleikir,
var fjarskalega sljór.
Og ósköp varð hann leiður,
þegar bankadruslan fór.

Þá þaut hann eins og Welding
og þotuna greip,og flaug með henni í London
því krónan var svo sleip.

5.
Sá fimmti Smárasnefill,
var skrítið fjármagnsstrá.
-Þegar hinir fengu í nefið
hann barði dyrnar á.

Þeir ruku'upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pokanum
og fékk sér góðan verð.

6.
Sá sjötti Sigjónárna,
var alveg dæmalaus.
-Hann framundan rústunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið vildi skýringar
á auralausum reikningum,
hann slunginn var að afsaka
og skyldi ei neitt í hlutunum.

7.Sjöundi var Heiðarmár,
-sá var sjaldan sýndur,
ef fólkið vildi tal af 'onum
hann var alltaf týndur.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó þjóðarskútan maraði
þá hálfu kafi í.

8.
Baugabur, sá áttundi,
var skelfilega þver.
Hann hluta keypt'af bönkunum
með hluta úr sjálfum sér.

Svo lánaði hann sér milljarða
og yfir öðrum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

9.
Níundi var Nógafaur,
næmur á fé og snar.
Hann hentist út um heiminn
og hluti keypti þar.

Á enskum bita sat hann
í símaleik
og át þar hluti drjúga,
enga Breta sveik.

10.
Tíundi var Skallakjaftur,
tungulipur mann,
sem hamaðist á landslýð
og æsti upp hann.

Ef vammlegt var hvergi
né ósiðlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

11.
Ellefti var Stjórnaskelfir
-aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hláleg
og heljarstór eyru og nef.

Ef fnyk af féhyggju
ekki hann fann,
þá léttur, eins og reykur,
lyktina upp spann.

12.
Sólráður, sá tólfti,
kunni að spinna vef.
-Hann þingmannasveitina
sveigði í kosningaþref.

Hann krækti sér í fylgi,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist enginn
akkurinn hans þá.

13.
Þrettándi var Kreppugeir,
-þá var komið kvöld,
alltaf kom hann síðastur
á bankahrunsöld.

Hann blekkti litlu börnin sín,
sem mótmæltu prúð og fín,
og trítluðu um bæinn
með spónaspjöldin sín.

Pólskt jólaglögg

Pólskt jólaglögg.
1 líter vodka 1 rúsína.
Skreytt með greni.
-----------------------------------------------------
Svo syngja allir: Skín í væna vínflösku,
og huggulega bjóra,
jólaglögg og eplasnafs
allt það ætl´að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér
látum illa í desember
burt með sokk og skó
hér af víni er nóg.
Ó, hvað ég elska jólin,
von´eg hitti á stólinn.


Gott með jólaföndrinu.

Thursday, December 11, 2008

Barþjónninn

„Þú kemur seint," sagði dökkhærði barþjónninn við ljóshærða barþjóninn.„Já, ekkert skrýtið, ég varð vitni að hræðilegu slysi á leiðinni. Það var eins gott að ég var búinn að fara á skyndihjálparnámskeið!"„Hvað gerðir þú?" spurði sá dökkhærði.„Ég settist á gangstéttina og beygði höfuðið niður á milli hnjánna til að það liði ekki yfir mig."

Einn hér

Sigfús og Geirþrúður bjuggu í huggulegri íbúðarblokk eldri borgara í Hafnarfirði. Þau urðu hissa þegar drepið var á dyr hjá þeim skömmu fyrir miðnætti eitt mánudagskvöldið. Sigfús fór til dyra og við dyrnar var stór og grimmdarlegur maður sem starði á hann. „Ó, þetta er hræðilegt. Nú verð ég rændur og missi alla peningana mína," hrópaði Sigfús og reif í hárið á sér.„Ég er enginn ræningi," urraði maðurinn hneykslaður. „Ég er nauðgari!"„Guði sé lof," sagði Sigfús og andaði léttar. „Þrúða mín, þetta er til þín!"

Gunna gamla

Gunna gamla dó og Jón, maðurinn hennar, hringdi í lögregluna. „Hvar býrðu í bænum?" spurði lögreglumaðurinn.„Við syðri endann á Kalkofnsgötu," sagði Jón.„Kakkoffs ..., úps, gætirðu stafað þetta fyrir mig." Eftir langa þögn sagði Jón: „Hvernig líst þér á að ég dragi Gunnu bara niður á Sæbraut og þið sækið hana þangað?"

Tveir ljóshærðir

Tveir ljóshærðir menn leigðu saman litla íbúð. Eldur braust út í íbúðinni eina nóttina og þeir hlupu út á svalir.„HJÁLP, HJÁLP," kallaði annar þeirra.„Kannski hjálpaði það ef við kölluðum saman!" sagði hinn.„Góð hugmynd," sagði sá fyrsti og þeir kölluðu í kór:„SAMAN, SAMAN ..."

Guðmundur

Guðmundur var að spjalla við Tom, kunningja sinn í Kaliforníu. „Ég er að fara til La Jolla í næstu viku," sagði Guðmundur.„Þú átt að segja La ' Hoj-a '!" greip Tom fram í. „Ó, ég skil. Við hjónin ætlum að dvelja á El Cajón hótelinu."„Þú meinar El Ca ' Hóne ' hótelinu!" leiðrétti Tom aftur.„Úps, ég skil." „Hvenær ferðu svo aftur til Íslands?" spurði Tom.Guðmundur hugsaði sig um í smástund og sagði svo varfærnislega: „Veit ekki, annaðhvort í húní eða húlí."

Fortíð, nútíð, framtíð!!?? Maður spyr sig??


Monday, December 8, 2008

Ítali

Ítalskur maður gegnur inn á uppáhalds veitingastaðinn sinn og meðan
hann situr við sitt borð tekur hann eftir því að gullfalleg kona situr
á næsta borði...alein. Hann kallar á þjóninn og biður hann um að fara
með dýrasta rauðvín hússins til hennar, vitandi það að ef hún þiggur
það sé nú eftirleikurinn auðveldur. Þjónninn fer með rauðvínið til
konunnar og segir henni að þetta sé frá herramanninum á næsta borði,
hún lítur á hann og ákveður að senda honum bréf. Í bréfinu stóð: " Ef
ég á að þiggja þessa flösku verður þú að eiga Mercedes í bílskúrnum,
milljón á bankareikningi og 7 tommur í nærbuxunum þínum!!" Eftir að
maðurinn las orðsendinguna ákvað hann að senda henni bréf til baka, og
í því stóð: " Bara svona til að þú vitir það þá vill svo til að ég á
Ferrari Testarosa, BMW 850iL og Mercedes 560SEL í bílskúrnum, plús að
ég á milljarða inn á bankareikningi, en jafnvel fyrir svona fallega
konu eins og þig myndi ég aldrei láta taka af 3 tommur, sendu bara
flöskuna til baka!!

Krossinn og kynlífið

Þrenn hjón, öldruð, miðaldra og ung, vildu ganga í Krossinn. Gunnar,
yfirkross, sagði þeim að til að fá að ganga í Krossinn þyrftu þau að komast
af í tvær vikur á kynlífs.

Hjónin samþykktu þessi skilyrði. Eftir tvær vikur þegar þau komu til baka
spurði Gunnar öldruðu hjónin "Hvernig gekk að vera án kynlífs Gamli
maðurinn svaraði að þetta hefði verið ekkert mál, þannig að Gunnar bauð þau
velkomin í Krossinn.

Næst spurði Gunnar miðaldra hjónin hvernig hefði gengið að vera án kynlífs
í tvær vikur. Miðaldra maðurinn svaraði að þetta hefði gengið vel fyrstu
vikuna, en seinni vikuna hefði hann þurft að sofa frammi í sófa, en það
hefði tekist. Gunnar bauð miðaldra hjónin velkomin í Krossinn.

Gunnar snéri sér síðan að ungu hjónunum og spurði: "Gátuð þið verið án
kynlífs í tvær vikur? "Nei Gunnar, okkur tókst ekki að vera án kynlífs í
tvær vikur" svaraði ungi maðurinn, sorbitinn. "Hvað gerðist? " spurði
Gunnar. "Konan mín var að teygja sig eftir málningardós á efstu hillunni og
missti hana. Þegar hún beygði sig eftir henni, stóðst ég ekki freistinguna
og skellti mér aftan á hana. "Þú skilur að þið eruð þá ekki velkominn í
Krossinn" segir Gunnar þá. "Já, við vitum það" sagði þá ungi maðurinn. "Við
erum heldur ekki velkomin aftur í Húsasmiðjuna"

Veraldargengið

Þótt veraldargengið sé valt
og úti andskoti kalt
Með góðri kellingu
í réttri stellingu
bjargast yfirleitt allt.

Thursday, December 4, 2008

Wednesday, December 3, 2008

Draumajólagjöf allra karlmanna!

Hugarvíl og harmur dvín,
er horfi ég á frúna.
Hún er eina eignin mín
sem ekki rýrnar núna.

Tuesday, December 2, 2008

Þetta er vinsælasta jólagjöfin í ár!


Of góður skáldskapur til að sitja einn

ÚTRÁSARVÍKINGARNIR
Við býsna mikið berumst á,
til Bretlands erum farnir.
Í Danmörku flest keyptum,
já við útrásarvíkingarnir.
Við kaupum og seljum út um allt
og græðum meira en hundraðfalt.
Svo græðum við barasta meir og meir
já við Björgólfur, Hannes og Jón Ásgeir.

Við kaupa það sem finnum falt
í flestum skúmaskotum.
Og fljúgum síðan út um allt
á nýjum einkaþotum.
Og enginn spyr okkur ekkert um,
með alla pressuna í vasanum.
Svo græðum við barasta meir og meir
já við Björgólfur, Hannes og Jón Ásgeir.

BANKAMENNIRNIR
Við digrum samning erum á,
svo endalaust við græðum.
Í sjóði landsins nú skal ná
með nýjum hagnaðarfræðum.
Og til að halda okkur gangandi
við ruplum suður á Bretlandi.
Já, það er nú meira, hvað karlinn er klár,
já við Sigurjón, Welding og Heiðar Már.

Við veiðum stundum lax með lús
og leigjum þyrlur allir.
Við byggjum okkur lúxushús
og ljúfar sumarhallir.
Og ökum um á Roverum
og partý með útlendum söngvurum.
Já við erum alls engin meðalgrein flón,
já við Heiðar Már, Welding og Sigurjón.

ÞJÓÐIN (lag: dvel ég í draumahöll úr Dýrunum í Hálsaskógi)
Dvel ég í draumaheim og dýrka víkingana.
Sólarferðir, borga-geim... og skíðaferðir plana.
Flatskjár, raðhús, freyðivín, fellihýsi og sleði.
Svona líður ævi mín í kaupæði og gleði.

DABBI (lag: Rebbavísur úr Dýrunum í Hálsaskógi)
Hér mætir Dabbi, sjá með alvæpni ó-já.
Með stýrivexti og verðbólgu og vaxtahækkun, vá.
Í Svörtuloftum er og stjórna öllu hér.
Hið litla, montna Glitnis-grey nú mætti gá að sér.
Ég kalla: "Gagg með kló í Baugsins-skinni,
þá kveð ég, þér ég næ að þessu sinni.
Þó að það kosti kannski hér
að við steytum upp á sker,
þá tek ég bara allt heila klabbið
í hafdjúpið með mér – HA HA HA HA"

JÓHANNA (Kardimommubærinn, lagið hennar Soffíu frænku)
Ja fussum svei, ja fussum svei.
Mig furðar þetta rót.
Í hverju skoti skúm og ryk
og skran og rusl og dót.
Og skuldasúpa út um allt,
en eignir engar finn.
Víkingarnir flugu út
og hirtu afganginn.

Já ástandið er ansi svart,
já allt sem moldarflag.
Og kraftaverk nú þyrfti til að koma öllu í lag.
Ég hækka bætur, hirði upp drasl
og hreinsa skítinn hér.
Já, núna loksins kom að því.
Minn tími kominn er.

ÚTRÁSARVÍKINGAR OG BANKAMENN (Hvar er húfan mín úr Kardimommubænum)
Hvar er bankinn minn?
Hvar er kaupaukinn?
Hvar er stóri feiti kaupréttarsamningurinn?
Hvar er flugrisinn?
Og hvar er Baugurinn?
Sérðu markað fyrir hlutabréfaviðskiptin?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.

Sérðu gjaldeyri?
Sérðu markaði?
Eða síbrosandi stóráhættufjárfesti?
Sérðu þotuna?
Eða jeppana?
Sérðu fylgispöku faguryrtu þjóðina?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.

Sérðu Illuga? stuttbuxnastrákana?
Hvar er Bjarni Ben og menntamálaráðherra?
Hvar er Guðni minn? og öll Samfylkingin?
Hvar er Björgvin, hvar er Solla, hver er forsetinn?
Ég er viss um að þau voru með í gær.
Já, ég er viss um að þau voru með í gær.

Höfundur: Kalli.

Hrunið