Thursday, November 20, 2008
Góður sá gamli(Kjartan kom með þennan)
Gamall maður hafði komið sér vel fyrir á landareign sinni. Á jörðinni var stór tjörn og umhverfis hana var svolítill skógur. Dag einn ákvað gamli maðurinn að fara niður að tjörninni og tók með sér stóra fötu í því skyni að tína nokkra ávexti á leiðinn. Þegar hann nálgaðist tjörnina heyrði hann hlátur og gleðiköll. Gamli maðurinn áttaði sig á því að þarna voru ungar konur að baða sig naktar í tjörninni . Hann hóstaði svo stúlkurnar gætu áttað sig á nærveru hans. Þær syntu lengra út í tjörnina, hvar hún var dýpst, til að skýla sér. Ein kvenanna hrópaði til hans:,,Við komum ekki upp úr fyrr en þú ert farinn!" " Það er allt í lagi: Ég kom ekki hingað til að horfa á ykkur naktar eða til að reka ykkur upp úr," sagði gamli maðurinn. ,,Ég kom til að gefa krókódílnum að éta." Boðskapur sögunnar: Þó gamlir menn hreyfi sig hægt, þá eru þeir snöggir að hugsa.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment