Thursday, November 27, 2008

Davíð


Thursday, November 20, 2008

Þróunarkenningin





Lýtalæknir

Sönn saga.Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum. Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.
Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.
Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.
Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. "Ég var einu sinni staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá".

Tvífarar


Frá Sverri Stormsker

Ástandið hefur stundum verið skárra á Los Klakos. Allar bankalínur eru lokaðar og allar hjálparlínur rauðglóandi. Aðrar línur hafa útrásardólgarnir tekið í nefið. Geðdeildirnar eru yfirfullar og bankastarfsmenn fá daglega áfallahjálp sálfræðinga og prestar blessa bankastjóra í bak og fyrir og skvetta vígðu vatni frá Jóni Ólafssyni á tómar bankahirslurnar. Almúginn hímir í kílómetra löngum biðröðum eftir súpu og Bubbi er betlandi á torgum með apa og lírukassa og er kominn á tveggja ára Range Rover (eða Game Over einsog hann heitir víst í dag). Hummer er orðinn að Bummer og Landcruser að Grandlúser.
Útrásarfroskarnir eru flúnir land á einkaþotunum enda ekkert meira að hirða af landslýð sem er svo mergsoginn og vanaður að meiraðsegja Blóðbankinn og Sæðisbankinn eru farnir á hausinn. Pólverjar flýja í ofboði til friðsamlegri og manneskjulegri landa einsog t.d. Íraks, Afganistan og Vestmannaeyja. Á hverjum degi sér maður gjaldþrota fólk fleygja sér fram af byggingum í fallegum boga, en það er sívinsæl vandamálalausn á krepputímum. Fólki bókstaflega rignir niður á gangstéttirnar svo maður er í bráðri lífshættu á göngutúrum um bæinn.
Þegar maður hringir á Klepp þá kemur sjálfvirkur símsvari: „Þú ert kominn í samband við Klepp. Ef þú hefur fjárfest í íslenskum bönkum, ýttu þá á einn. Ef þú ert farinn að hamstra matvæli í Bónus, ýttu á tvo. Ef þú heldur virkilega að einhver verði látinn sæta ábyrgð á hruninu, ýttu á þrjá. Ef þú treystir stjórnmálamönnum og öðrum íslenskum amatörapaköttum til að leysa úr vandanum, ýttu á fjóra. Ef þér finnst skynsamlegt að sömu hlandaularnir sem áttu stóran þátt í hruninu, Fjármálaeftirlitið og ríkisstjórnin, sjái um uppbygginguna, ýttu á fimm. Ef þú heldur að krónan sé gjaldgengur gjaldmiðill, ýttu á sex. Ef þú ert búinn að gleyma lofræðum forsetans um útrásarkrimmana, ýttu á sjö. Ef ekkert er valið þá verður þér gefið samband við útibúið við Austurvöll. Þú ert númer 168.537 í röðinni."

Einn góður

Nú vitið þið hvernig hægt er að djöflast illilega á fyrrverandi tralalalala la

Maðurinn hafði fundið aðra - svo hún átti að flytja út.
Hún eyddi fyrsta deginum með að pakka öllu niður í kassa.
Næsta dag kom fluttningsbíllinn og sótti allt dótið.
Þriðja daginn settist hún við fallega borðstofuborðið í síðasta skipti, kveikti á kertum, setti góða músik á og borðaði stóran skammt af rækjum, rússneskum kavíar og drak flösku af Chardonnay.Þegar hún hafði borðað, gekk hún hringinn í hvert einasta herbergi og tróðrækjurestum inn í endana á öllum gardinustöngunum !Þar á eftir gerði hún eldhúsið hreint og yfirgaf húsið.Þegar maðurinn kom tilbaka í húsið með nýju kærustuna sína, voru fyrstu dagarnirekkert nema gleði og hamingja. En svo byrjaði húsið smám saman að lykta.Þau prófuðu allt, ryksuguðu, þvoðu, loftuðu út.Loftræstingin var skoðuð gaumgæfilega kanski voru þar dauðar mýsog rottur, teppin voru hreinsuð, og ilmpokum og loftfrískandi vörum var komið fyrir alls staðar.Meindýravörnin var kölluð til og húsið var "gasað" gegn lyktinni, það þýddi, að þetta hamingjusama par þurfti að flytja út í nokkra daga.
Að lokum var allt veggfóður rifið af og húsið allt málað vel og vandlega.
Ekkert hjálpaði.Vinirnir hættu að koma í heimsókn.
Iðnaðarmenn og aðrir starfskraftar gerðu allt til þess að þurfa ekki að vinna í húsinu.
Húshjálpin sagði upp.Á þessum tímapunkti gátu þau ekki heldur haldið fnykinn út lengur, svo þau ákváðu að selja. Mánuði seinna hafði húsið ekki selst, þrátt fyrir að verðið hafi lækkað um helming.Sagan gekk, og fasteignasalinn hætti að svara hringingum þeirra. Að lokum voru þau neydd til að taka stórt bankalán til að kaupa nýtt hús.Fyrrverandi - eiginkonan hringdi til mannsins og spurði hvernig gengi.Hann sagði henni söguna um rotna húsið.Hún hlustaði með mikilli umhyggju og sagði svo að hún saknaði gamla heimilis síns ógurlega mikið, og hún gæti vel hugsað sér að kaupa húsið aftur.Maðurinn var viss um að, ex-ið vissi ekkert um hve málið væri slæmt, svo hann samdi við konuna að selja henni húsið á tíunda-hluta af markaðsverði, gegn því skilyrði að skrifað yrði undir samdægurs.
Hún samþykkti það.Viku seinna stóðu maðurinn og kærastan í húsinu í síðasta sinn -þau hlógu yfir sig hamingjusöm. Og þeim var létt þegar fluttningsbíllinn kom og sótti allt þeirra dóttil að keyra því yfir í nýja húsið.- þar á meðal gardínustöngunum!!!!

Færeyjabrandari

Og hér er ein grein frá yfirvöldum í Færeyjum um notkun nagladekkja:Nagladekk = píka )
Frá sunnudegnum 15. oktober er aftur loyvt at brúka píkur. (nagla-dekk)
Tað kann hugsast, at sumir verða freistaðir at seta píkurnar upp
undir komandi vikuskiftið, en ikki ráðiligt at seta píkarnar undir
til dømis fríggjadagin ella leygardagin, bara frá sunnudegnum

Svisslendingar

Íslenski sjávarútvegsráðherrann hitti svissneska kollega sinn og spurði hann af hverju Svisslendingar væru með sjávarútvegsráðherra það væri jú engin sjór í kringum Swiss. Svissneski ráðherrann svaraði með annarri spurningu: "Hvað eruð þið að gera með fjármálaráðherra?"

Góður sá gamli(Kjartan kom með þennan)

Gamall maður hafði komið sér vel fyrir á landareign sinni. Á jörðinni var stór tjörn og umhverfis hana var svolítill skógur. Dag einn ákvað gamli maðurinn að fara niður að tjörninni og tók með sér stóra fötu í því skyni að tína nokkra ávexti á leiðinn. Þegar hann nálgaðist tjörnina heyrði hann hlátur og gleðiköll. Gamli maðurinn áttaði sig á því að þarna voru ungar konur að baða sig naktar í tjörninni . Hann hóstaði svo stúlkurnar gætu áttað sig á nærveru hans. Þær syntu lengra út í tjörnina, hvar hún var dýpst, til að skýla sér. Ein kvenanna hrópaði til hans:,,Við komum ekki upp úr fyrr en þú ert farinn!" " Það er allt í lagi: Ég kom ekki hingað til að horfa á ykkur naktar eða til að reka ykkur upp úr," sagði gamli maðurinn. ,,Ég kom til að gefa krókódílnum að éta." Boðskapur sögunnar: Þó gamlir menn hreyfi sig hægt, þá eru þeir snöggir að hugsa.

Friday, November 14, 2008

Til umhugsunar

Hjónin sátu og ræddu um lífið og dauðann. Þar kom að eiginmaðurinn sagði að hann vildi ekki að sér væri haldið lifandi með tækjum og fljótandi næringu. Eiginkonan brást skjótt við, slökkti á sjónvarpinu og hellti niður bjórnum hans.

Óska eftir niðurfellingu skulda


Sönn ást

Hvernig veistu hvað sönn ást er?
Taktu konuna þína og hundinn og lokaðu þau bæði ofan í skottinu á bílnum þínum.
Bíddu í klukkutíma, ekki skemur annars virkar þetta ekki. Opnaðu svo skottið og sjáðu hvort þeirra er ánægt að sjá þig.