Friday, October 9, 2009

Monday, October 5, 2009

Af hverju er svona mikið að gera hjá konum ?

Kvenlegt annríki Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum. Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót. Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það) Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar. Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því. Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða. Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð. Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta ; á eftir banananum, tannbursta ... Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar... Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn. Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund). Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí. Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman. Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?! Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar. Var ein hendi laus? Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!! Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir... En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér. Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.

Friday, October 2, 2009

Í orðastað Sigmundar Ernis

Í orðastað Sigmundar Ernis
“Við syrgjum tapaðan Íslands auð
sem allur var tekinn að láni
því fór ég í golf sem bankinn bauð
bisnisskörlum og alþingissauð
át og drakk eins og bjáni.

Viðstaddir gleymdu stað og stund
stappi, hruni og mæðu.
Svo þurfti ég víst að fara á fund
ferlega mildur og kátur í lund
með skrifaða skáldlega ræðu.

Málið er flókið og umræðan öll
út í móa er farin.
Ég fíl’ ekki þessi frammíköll
og framsóknartittanna hlátrasköll
og ætla því aftur á barinn.”

Hvítlaukur

Skilst að þetta gerist ef maður borðar of mikinn hvítlauk J
aðvörun - Minnkið hvítlauksátið strax !

7%

Helgur maður var í viðræðum við Guð og sagði: Guð, mig langar að vita hver munurinn er á himni og helvíti. Við svo búið fór Guð með manninn að tvennum dyrum. Hann opnaði aðra þeirra og hinn helgi maður leit inn. Í miðju herbergisins var stórt hringlaga borð. Á miðju borðsins var stór pottur með pottrétti sem ilmaði svo vel að hinn helgi maður fékk vatn í munninn. Fólkið sem sat við borðið var horað og veiklulegt. Það leit út fyrir að vera að svelta í hel. Fólkið hélt á skeiðum með löngu handfangi og hendur þeirra voru bundnar við stólana en þó gátu þau veitt matinn upp úr pottinum með skeiðinni. En þar sem handföngin á skeiðunum voru lengri en hendur þeirra þá gátu þau ekki komið matnum úr skeiðinni upp í sig. Hinn helgi maður varð undrandi á þeirri eymd og þjáningu sem við honum blasti. Guð sagði, 'Þú hefur nú séð inn í helvíti.' Síðan fóru þeir að næstu hurð og opnuðu hana. Við blasti sama sjón og í fyrra herberginu. Stórt hringlaga borð með stórum potti fullum af pottrétti sem einnig varð til þess að hinn heilagi maður fékk vatn í munninn. Fólkið hafði sama búnað, þ.e. skeiðar með löngu handfangi.. Munurinn var hins vegar sá að þetta fólk var vel haldið, kátt,hresst og talaði saman. Þetta sagðist hinn helgi maður ekki skilja. Þetta er einfalt, sagði Guð. En þetta krefst eins hæfileika. Eins og þú sérð þá hefur þetta fólk lært að mata hvert annað á meðan að hinir gráðugu hugsa eingöngu um sjálfan sig. Það er talið líklegt að 93% muni ekki senda þennan póst áfram. Ef að þú ert á meðal hinna 7% sem munu áframsenda þenna póst þá áframsendu hann undir nafninu "7%" Ég er í 7% hlutanum. Mundu að ég mun alltaf deila skeið minni með þér.

Steingrímur J

Á góðum degi í framtíðinni ...Steingrímur Sigfússon er kominn til himna þar sem hann hitti Lykla-Pétur.Lykla-Pétur varð svolítið vandaræðalegur: „Eh, velkominn,“ sagði hann loks. „Þakka þér fyrir,“ sagði Steingrímur, „ég vissi að ég mundi enda hér“.„Nja,“ sagði Pétur , „þú hefur lifað sæmilega frómu lífi, eða þannig, svo við vildum gjarnan hafa þig hér en því eru ekki allir sammála. Þú ert umdeildur maður og það hafa fleiri áhuga á þér en við hér í himnaríki. Við urðum að halda fund með djöflinum þar sem þetta var rætt og það endaði með því að við gerðum samning við hann.“„Samning!“ Hrópaði Steingrímur og var sýnilega brugðið.„Það er nú ekki alslæmt,“ sagði Pétur, „en djöfullinn sagðist nú þegar hafa flesta vini þína svo við sömdum um að þú eyddir einum sólarhring í helvíti og öðrum hér hjá okkur í himnaríki og svo velur þú sjálfur hvar þú dvelur um aldur og eilífð.Steingrímur maldaði svolítið í móinn en samningur er jú samningur svo Pétur vísaði honum á lyftuna, kvaddi hann og sagðist sjá hann eftir sólarhring. Steingrímur ýtti á hnapp merktan „helvíti“ í lyftunni og seig svo langt, langt niður á við þar til lyftan stoppaði við kolsvarta hurð. Þegar dyrnar opnuðust stóð djöfullinn sjálfur fyrir innan. „Gamli vinur, vertu hjartanlega velkominn, gakktu í bæinn,“ sagði kölski.Steingrímur fór inn og við honum blasti risastór golfvöllur. Margir af hans gömlu flokksbræðrum léku golf á vellinum eða stóðu í smáhópum og töluðu saman. Golfvöllurinn var fullkominn. Það var heitt í lofti og út um allt voru léttklæddar, snoppufríðar djöflastelpur sem færðu mönnum bjór og aðra kalda drykki. Steingrímur lék golf allan daginn og um kvöldið bauð Svavar Gestsson, honum í „gúrme“grill ásamt Indriða, Álfheiði og fleiri góðum vinum með öllu góðgæti sem hugsast gat. Fáum sögum fer af því hvernig Steingrímur eyddi nóttinni en sólarhringurinn í helvíti var fljótur að líða og morguninn eftir var honum vísað á lyftuna á ný.Þegar Steingrímur kom aftur til himnaríkis var hann efins um ágæti þess staðar en það var samt sem áður tekið vel á móti honum. Hann var klæddur í englaföt og fengin harpa til að leika á. Hann eyddi deginum með því að ganga um milli skýjanna, hlustaði á fagran fuglasöng og borðaði ferska ávexti. Hann fékk reyndar í magann af ávöxtunum og það pirraði hann að sjá Davíð og Þorgerði sitja saman á skýi og leika á hörpur af mikilli innlifun.Um kvöldið kom Pétur. „Nú ertu búinn að dvelja heilan sólarhring í helvíti og heilan dag hér í himnaríki. Ertu kannski búinn að ákveða þig?“ Spurði Lykla-Pétur.„Hmm,“ sagði Steingrímur, ég átti nú kannski ekki von á því en ég held að ég velji helvíti, þrátt fyrir allt. Það er heppilegasti staðurinn fyrir mig.“ Andlitið datt af Pétri og hann reyndi hvað hann gat að fá Steingrím ofan af ákvörðun sinni. En Steingrímur var harðákveðinn.Á ný fór Steingrímur með lyftunni niður í helvíti og djöfullinn tók aftur á móti honum. Hann kippti Steingrími inn en þar var þá allt öðru vísi umhorfs en daginn áður. Brennisteinsfnykinn lagði um allt og skerandi sársaukavein flokksbræðra hans og vina fylltu loftið. „En hvar er golfvöllurinn?“ Spurði Steingrímur. „Og djöflastelpurnar, bjórinn og grillið?„Ah,“ sagði djöfullinn, „þú skilur þetta manna best, í gær var kosningabaráttan í fullum gangi. En nú ertu búinn að kjósa!“