Tuesday, October 28, 2008
Thursday, October 23, 2008
Hvað gerir pabbi þinn?
HVAÐ GERIR PABBI ÞINN ???
Nonni litli er í 1 bekk grunnskóla.
Dag einn var samfélagsfræði og þá spurði kennarinn hvað feður þeirra störfuðu.
Börnin svöruðu eins og þeim er lagið: Pabbi minn er lögga, brunaliðsmaður, skrifstofumaður, vinnur í verslun og svo framvegis.
En kennarinn tók eftir því að Nonni litli var óvenju hljóður og lét lítið fara fyrir sér.
Hvað gerir svo pabbi þinn, spurði kennarinn Nonna litla.
Hann dansar nakinn fyrir framan karla á öllum aldri á veitingastað á kvöldin og á næturnar.
Svo græðir hann fullt á því að fara með þeim áhorfendum sem best bjóða út í portið á bak við veitingastaðinn þar sem hann dansar einkadans fyrir þá í nokkrar mínútur.
Kennarinn varð eðlilega mjög undrandi yfir svari Nonna litla og í miklu fáti skipaði hann hinum krökkunum að fara að lita, en Nonna litla tók hann afsíðis.
Er þetta alveg satt sem þú sagðir um hann pabba þinn … Dansinn og allt það?
Nei, nei, sagði Nonni litli feiminn.
Pabbi vinnur hjá Kaupþingi-Búnaðarbanka en ég þorði sko alls ekki að segja það fyrir framan hina krakkana.

Heimurinn í hnotskurn
Heimurinn í hnotskurn!
SÓSÍALISMI Þú átt 2 kýr. Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.
KOMMÚNISMI Þú átt 2 kýr.Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
FASISMIÞú átt 2 kýr.Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.
NASISMIÞú átt 2 kýr.Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐIÞú átt 2 kýr.Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.
HEFÐBUNDINN KAPITALISMI Þú átt 2 kýr.Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein
SÚRREALISMIÞú átt 2 gíraffa.Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.
BANDARÍSKA FYRIRTÆKIÞú átt 2 kýr.Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR Þú átt 2 kýr.Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.
FRANSKT FYRIRTÆKIÞú átt 2 kýr.Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.
JAPANSKT FYRIRTÆKIÞú átt 2 kýr.Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim.
ÞÝSKT FYRIRTÆKIÞú átt 2 kýr.Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.
ÍTALSKT FYRIRTÆKIÞú átt 2 kýr.Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.
RÚSSNESKT FYRIRTÆKIÞú átt 2 kýr.Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.
SVISSNESKT FYRIRTÆKIÞú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun. Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr.Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.
INDVERSKT FYRIRTÆKIÞú átt tvær kýr. Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKIÞú átt tvær kýr.Báðar eru með gin-og klaufaveiki
ÁSTRALSKT FYRIRTÆKIÞú átt 2 kýr.Bissnessinn gengur vel. Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr.Sú til vinstri er asskoti löguleg.
ÍRASKT FYRIRTÆKIAllir virðast eiga fjölda kúa. Þú segir öllum að þú eigir enga. Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið. Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...

Wednesday, October 22, 2008
Kreppfréttir
"Hvern fjandann er fólkið að meina?
Starfs míns vegna neyðist ég til að lesa kreppufréttir daginn út og daginn inn. Auðvitað finnst mér þetta alveg hræðilegt og allt það en það er eitt sem ég skil ekki. Flestir tala um að nú sé kominn tími til að sinna börnunum sínum, fjölskyldu og vinum. Hvað í andskotanum heldur þetta fólk að íslenskur almenningur hafi haft fyrir stafni? Skyldi það ætla að við höfum verið viti okkar fjær og stigið trylltan dans í kringum gullkálfinn á meðan börnin okkar, vinir og ættingjar lágu óbættir hjá garði? Umkomulausir og einmana þar sem enginn hafði nokkurn tíma fyrir þá?
Ég sjálf og allir sem ég þekki hafa nú verið uppteknir af því að vinna fyrir sér, að vísu ekki að vinna fyrir bankastjóralaunum heldur bara svona til að eiga fyrir salti í grautinn. Þessi sauðsvarti almúgi sem ég þekki hefur bara hugsað vel um börnin sín, takk fyrir. Hringt í vini og ættingja og heimsótt þá jafnvel ef sérlega vel hefur legið á fólki.
Mér finnst þessi umræða gjörsamlega fáránleg. Það er verið að slá ryki í augun á okkur með því að við getum nú gert svo margt gott og nytsamlegt þótt búið sé að ræna okkur aleigunni og marga starfinu. Nú þakkar maður fyrir það helst að hafa þó vinnu. Það er verið að koma inn hjá okkur samviskubiti, að við höfum nú ekki hugsað sem best um þá sem næst okkur standa. Nú þegar við erum orðin atvinnulaus og blönk getum við allavega gefið okkur tíma að sinna börnunum í stað þess að æsa okkur yfir því að það sé búið að svipta okkur aleigunni og atvinnunni.
Við eigum nefnilega ekkert að vera að velta okkur upp úr því hver sé ástæðan fyrir þessum hremmingum, við erum hvort eð er svo vitlaus að við munum aldrei geta skilið að þetta var eiginlega alveg óvart og mönnum í útlöndum að kenna. Hvað er svo sem að marka einhverja aumingja sem eiga ekki einu sinni part í þyrlu?
Ég fyrir mína parta ætla að halda áfram að sinna börnunum mínum, ættingjum og vinum. En ég ætla líka að vera reið, alveg fjúkandi vond, og ekki hætta fyrr en ég hef fengið svör við því hvernig í andskotanum allt gat farið hér til helvítis á einni nóttu.
Afsakið orðbragðið.
Kona"

Thursday, October 9, 2008
Kreppubrandari
An American said:
*'We have George Bush, Stevie Wonder,Bob Hope, and Johnny Cash.'
**And an Icelander replied:*'We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope,and no Cash'.

Tuesday, October 7, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)